logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

BÓKASAFN - LITLI SKIPTIBÓKAMARKAÐURINN 2017

10/02/2017
„Þín bók, mín bók – bækurnar okkar“

Litli skiptibókamarkaðurinn fór fram annað árið í röð í Bókasafni Mosfellsbæjar vikuna 21. – 28. janúar síðastliðinn og viljum við þakka öllum þeim frábæru krökkum sem tóku þátt, hversu vel tókst til.

Markaðurinn var fyrir börn 6 – 12 ára og mættu þau með bækur að heiman sem þau vildu skipta út fyrir aðrar. Bókunum var raðað á langborð og þau gátu svo valið sér jafn margar bækur í stað sinna eigin, og eina til tvær aukalega. Um 52 bækur skiptu um eigendur að þessu sinni.

Allir fengu svo að velja sér bókamerki með mynd af Vaiana, sem er nýjasta hetja Disney, til að taka með heim. Almenn ánægja var með þetta framtak og fóru flestir sáttir heim með nýjan bókafeng í farteskinu. Vonumst til að geta endurtekið leikinn að ári.

Með kveðju, starfsfólk Bókasafnsins.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira