logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ritlistarnámskeið 2018

15/06/2018
Bókasafn Mosfellsbæjar bauð fjórða árið í röð til ritlistarnámskeiðs fyrir 10-12 ára börn. Námskeiðið var haldið 11.-13. júní í safninu og leiðbeinandi var Davíð Stefánsson rithöfundur.

Fjórtán krakkar tóku þátt að þessu sinni og var þeim uppálagt að taka sér ýmislegt skemmtilegt og spennandi fyrir hendur til að örva sköpunargáfuna. Að námskeiði loknu var foreldrum boðið til útskriftar þar sem börnin lásu úr verkum sínum og fengu afhent viðurkenningarskjöl.

Þetta var skemmtileg stund þar sem rithöfundar framtíðarinnar fengu að láta ljós sitt skína við góðar undirtektir. Börnin og foreldrar voru mjög ánægð með þetta framtak Bókasafnsins og leiðbeinandanum var klappað lof í lófa.

Við þökkum börnunum kærlega fyrir þátttökuna, sjáumst aftur að ári.

Starfsfólk Bókasafnsins.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira