logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Uppskeruhátíð Sumarlestrar þann 7. september sl.

14/09/2018
Uppskeruhátíð Sumarlestrar var haldin á Bókasafnsdeginum þann 7. september sl. Skráningin í ár var frábær en um 350 börn voru skráð. Mikil ánægja var hjá foreldrum að fá kærkomið tækifæri til að hvetja börnin til lestrar og viðhalda þeirri lestrarhæfni sem þau hlutu um veturinn. Við buðum upp á hitting einu sinni í mánuði yfir sumarið þar sem þau komu sem gátu, þá var dregið í happdrætti og þrautir leystar.

Á uppskeruhátíðinni fengum við Ingibjörgu Valsdóttur til að lesa upp úr nýútkominni bók sinni Pétur og Halla við hliðina: útilegan. Börnin voru afar spennt yfir bókinni og þrjú þeirra duttu í lukkupottinn þegar þau voru dregin út sem vinningshafar. Önnur þrjú fengu einnig vinning í happdrættinu en það voru bækur sem útgáfufélagið Töfrahurðin gaf okkur. Öll fengu börnin viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna, og voru svo leyst út með drykk og súkkulaði í lokin. Vel heppnuð uppskeruhátíð í Bókasafninu. Við þökkum ykkur fyrir þátttökuna og minnum á viðurkenningarskjölin.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira