logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vel mætt á Bókmenntahlaðborð 2018

20/11/2018
Að vanda var vel mætt á Bókmenntahlaðborð Bókasafns Mosfellsbæjar og hlýddu um 330 gestir á lestur úr glænýjum jólabókum í notalegu umhverfi Bókasafnsins.
Áður en dagskrá hófst léku Sigurjón Alexandersson og Ingi Bjarni Skúlason ljúfa tóna á gítar og flygil.
Rithöfundar kvöldsins voru þau Halldóra Thoroddsen með bók sína Katrínarsaga, Hallgrímur Helgason með Sextíu kíló af sólskini, Þórdís Gísladóttir með Horfðu ekki í ljósið, Jónas Reynir Gunnarsson með Krossfiskar og handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2018, Auður Ava Ólafsdóttir, en hún las úr nýrri bók sinni Ungfrú Ísland.

Í fjórtánda sinn stjórnaði Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur og forsætisráðherra líflegum umræðum að lestri loknum. Í lokin dró hún saman helstu einkennisþræði skáldsagnanna sem lesið var úr; allar fjölluðu þær að einhverju leyti um andlega líðan og tilvistarspurningar, jafnvel trúmál – eins konar andlegt ferðalag. Katrín þakkaði höfundum og kvaddi áheyrendur; hún hafði á orði að mæting á Bókmenntahlaðborð Bókasafnsins Mosfellsbæjar væri núorðið eitt af því skemmtilegasta sem hún gerði.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira