logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ritsmiðja 2019

19/06/2019

Bókasafn Mosfellsbæjar bauð fimmta árið í röð til ritsmiðju fyrir 10-12 ára börn. Smiðjan var haldin 12.-14. júní í safninu og leiðbeinandi var Davíð H. Stefánsson rithöfundur.

Níu krakkar tóku þátt að þessu sinni og var ýmsum hugmyndum hent á loft til að örva sköpunargáfuna. Að smiðju lokinni var foreldrum boðið til útskriftar þar sem börnin lásu úr verkum sínum og fengu afhent viðurkenningarskjöl.

Þetta var skemmtileg stund þar sem rithöfundar framtíðarinnar fengu að láta ljós sitt skína við góðar undirtektir. Börn og foreldrar voru mjög ánægð með þetta framtak Bókasafnsins og Davíð var klappað lof í lófa.

Við þökkum börnunum kærlega fyrir þátttökuna, sjáumst aftur að ári.


 Hér má sjá ritsnillingana ásamt leiðbeinanda sínum.

    
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira