logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vinningshafi þessarar viku í sumarlestri Bókasafnsins er Tanía

30/06/2020
Vinningshafi þessarar viku í sumarlestri Bókasafnsins er Tanía. Tanía las eina af dagbókum Kidda klaufa þar sem Kiddi lendir í köldum vetri með tilheyrandi ævintýrum og vandræðagangi. Í verðlaun fær Tanía bókina Villinorn: Eldraunin eftir Lene Kaaberbøl. Innilega til lukku, Tanía!

Enn er hægt að skrá sig í sumarlestrarátak Bókasafnsins og tryggja sér lestrardagbók og glaðning. Við drögum úr bókaumsögnum vikulega í allt sumar og hljóta heppnir þátttakendur vinning 😊
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira