logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Hver hlutur á sinn stað

22/02/2022
Athugulir bókasafnsgestir hafa kannski tekið eftir því að nú eru bækurnar fyrir yngstu lesendurna merktar með staf efst í hægra horni. Þetta er nýjung á vegum Bókasafns Mosfellsbæjar til að auðvelda börnum að ganga sjálf frá bókunum í barnahorninu. Hólfin fyrir bækurnar eru merktar með bókstöfum og bækur með samsvarandi bókstaf eiga heima þar. Það verður því að nokkurs konar leik fyrir barnið að finna rétt hólf og ekki skemmir fyrir ef þetta hjálpar því að læra stafrófið.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira