logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

BÓKASAFN - Vinningshafinn í aprílgetrauninni

16/05/17BÓKASAFN - Vinningshafinn í aprílgetrauninni
Það var hin níu ára gamla Aþena Rán Stefánsdóttir sem sigraði í aprílgetrauninni okkar. Hún fékk í verðlaun bókina Atlasinn minn. Undur veraldar. Aþena Rán er í Varmárskóla og kemur oft í Bókasafnið. Hún segist alltaf taka þátt í getraununum okkar og það borgaði sig svo sannarlega í þetta sinn. Auk þess að vera mikill lestrarhestur stundar Aþena Rán bardagalistina Taekwondo. Flott stelpa hér á ferð!
Meira ...

LISTASALUR - Litir eins og tónlist 20. maí - 17. júní 2017

16/05/17LISTASALUR -  Litir eins og tónlist 20. maí - 17. júní 2017
Ný sýning verður í Listasal Mosfellsbæjar frá laugardeginum 20. maí. Á sýningunni sem heitir Litir eins og tónlist eru sýnd myndverk Sigurðar Hauks Lúðvígssonar (1921-2006).
Meira ...

BÓKASAFN - Lokafundur Leshópsins

16/05/17BÓKASAFN - Lokafundur Leshópsins
Síðustu ár hefur verið starfandi Leshópur í samstarfi Félags eldri borgara og Bókasafns Mosfellsbæjar. Hópurinn hittist mánaðarlega frá september til maí. Fastur fundarstaður er á Hlaðhömrum. Sú hefð hefur skapast að lokaskiptið sem hópurinn hittist sé í Bókasafni Mosfellsbæjar og býður safnið heim rithöfundi og einnig er boðið uppá kaffi og eitthvað með því. Að þessu sinni var það rithöfundurinn Auður Ava Ólafsdóttir sem sótti hópinn heim. Hópurinn hafði lesið Afleggjarann eftir hana og sumir einnig lesið fleiri bækur hennar. Áttum við öll frábæra stund með Auði Övu og þökkum við henni kærlega fyrir komuna.
Meira ...

BÓKASAFN - Síðasta getraunin í bili

03/05/17BÓKASAFN - Síðasta getraunin í bili
Nú er komin ný getraun og er hana að finna á hringborðinu í barnadeildinni. Svaraðu þremur spurningum, merktu svarblaðið með fullu nafni, aldri og heimilisfangi og settu svo í græna póstkassann á borðinu. Eins og vanalega eru flott bókarverðlaun í boði. Þetta verður síðasta getraunin í bili því bráðum hefst sumarlesturinn. Við hvetjum alla krakka til að taka þátt í þeim skemmtilega viðburði ekki síður en maígetrauninni.
Meira ...

BÓKASAFN - Í brennidepli: ÍRSKAR BÓKMENNTIR – MAÍ 2017

02/05/17BÓKASAFN - Í brennidepli: ÍRSKAR BÓKMENNTIR – MAÍ 2017
May Day, eða maí-dagur, tengist keltneska hátíðisdeginum Lá Bealtaine á Írlandi. Áður fyrr markaði Lá Bealtaine upphaf nýrrar árstíðar í byrjun maí þegar blóm og ávaxtatré byrjuðu að springa út. Eins og á Íslandi er 1. maí, Lá an Lucht Oibre, frídagur verkafólks í Írska lýðveldinu. Haldið er upp á keltnesku maíhátíðina með því að kveikja í stórum bálköstum með úrvali viðartegunda. Viðartegundirnar eru taldar hafa mismunandi dulræna merkingu og var áður litið svo á að þær hefðu mikilvægu hlutverki að gegna fyrir frjósemi jarðar og búfénaðar á komandi ári. Maí er þurrasti árstíminn á Írlandi. Á eftir grísku og latínu teljast írsku bókmenntir til elstu bókmennta Evrópu, allt frá fjórðu eða fimmtu öld. Írskar bókmenntir má í raun flokka á tvo vegu; bókmenntir sem skrifaðar eru á ensku frá tímabilinu um 1690, og svo þær bókmenntir á írsku (gelísku) sem flokkast undir keltneskar bókmenntir.
Meira ...

BÓKASAFN - MENNINGARVORIÐ 2017

25/04/17BÓKASAFN - MENNINGARVORIÐ 2017
Menningarvorið – dagskrá í Bókasafninu – var haldið núna í áttunda sinn. Boðið var upp á tvö menningarvor. Menningarvorið – dagskrá í Bókasafninu – var haldið núna í áttunda sinn. Boðið var upp á tvö menningarvor.
Meira ...

LISTASALUR - Sýningaropnun - Tinni í túninu heima

11/04/17LISTASALUR - Sýningaropnun - Tinni í túninu heima
Laugardaginn 8. apríl opnaði Ísak Óli Sævarsson einkasýningu sína Tinni í túninu heima í Listasal Mosfellsbæjar. Ísak Óli hefur áður sýnt í Listasalnum, en þá með fleirum. Sýningin er samstarf við List án landamæra og hefur verið samstarf milli Listasalarins og þeirra í nokkur ár og fjölbreyttar og skemmtilegar sýningar verið í salnum á þeirra vegum. Það er heiður að fá að taka þátt í þessu samstarfi. Alls sýnir Ísak Óli 59 myndir á sýningunni og eru þær til sölu. Við sýningaropnuna tóku Ísak Óli og faðir hans Sævar Magnússon lagið og gestir tóku undir í viðlaginu. Sýning Ísaks Óla er opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins og stendur hún til 13. maí.
Meira ...

BÓKASAFN - Vinningshafinn í mars

07/04/17BÓKASAFN - Vinningshafinn í mars
Það var hin ljónheppna Brynja Maja sem vann í marsgetrauninni okkar. Brynja Maja er 8 ára og gengur í Varmárskóla. Hún er nýflutt í bæinn og kemur stundum til okkar í Bókasafnið ásamt vinkonum sínum og systur. Brynja Maja fékk í verðlaun bókina Atlasinn minn: Heimurinn sem er fræðslubók um landafræði með fjölda límmiða og veggspjaldi. Við óskum Brynju Maju til hamingju með vinninginn og bjóðum hana velkomna í Mosfellsbæ.
Meira ...

BÓKASAFN - Aprílgetraun

05/04/17BÓKASAFN - Aprílgetraun
Áfram höldum við með nýja getraun. Nú er spurt um bækur Guðrúnar Helgadóttur, ofurhetjur og krúttleg dýr. Spurningablaðið er sem fyrr staðsett á hringborðinu í barnadeildinni. Endilega takið þátt og látið vini ykkar vita. Einn heppinn krakki hlýtur bók í verðlaun.
Meira ...

BÓKASAFN - Í brennidepli: DANSKAR BÓKMENNTIR

04/04/17BÓKASAFN - Í brennidepli: DANSKAR BÓKMENNTIR
DANSKAR BÓKMENNTIR – APRÍL 2017 16. apríl er afmælisdagur Margrétar Danadrottningar (f. 1940) sem er haldinn hátíðlegur í Danmörku ár hvert. Þjóðhátíðardagur Dana er hins vegar 5. júní; en þann dag var stjórnarskráin staðfest árið 1849. Áhugi Margrétar drottningar á listum og fornleifafræði er vel þekkt, en hún hefur einnig fengist við þýðingar af erlendum málum yfir á dönsku og skrifaði bók um sögu Danmerkur, De dybeste rödder (2016). Danskar bókmenntir eiga upphaf sitt að rekja til goðafræði Norðurlanda og fyrstu rúnaristanna. Bókmenntaarfurinn telur handrit, þjóðkvæði frá miðöldum, sálma, harmleiki, skáldsögur, smásögur og ljóð. Þrátt fyrir lítið tungumálasvæði eru danskar bókmenntir mikið þýddar og koma fjölmargir mikilsvirtir rithöfundar þaðan.
Meira ...

Síða 5 af 8

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira