logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Aprílgetraun

01/04/19Aprílgetraun
Nú er komið að nýrri barnagetraun. Í þetta sinn spyrjum við um Nóbelsverðlaunahafa, stráka sem skemmta sér konunglega án þess að vera með nýjustu leikföngin og kvartsárar prinsessur. Einn heppinn sem svarar öllu rétt fær bók í verðlaun. Munið bara að merkja svarblaðið vel og vandlega!
Meira ...

Hamur — opnun á sýningu Hildar Henrýsdóttur

27/03/19Hamur — opnun á sýningu Hildar Henrýsdóttur
Sýningin Hamur verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 30. mars kl. 14-16. Listakonan Hildur Ása Henrýsdóttir (f. 1987) hefur vakið athygli fyrir einlæg og kraftmikil verk sín. Á sýningunni gerir hún að umfjöllunarefni sínu þá ramma samfélagsins sem smíðaðir hafa verið utan um konur og kvenleikann.
Meira ...

Menningarvor í Mosfellsbæ 2019 - Þriðjudagana 2. og 9. apríl

27/03/19Menningarvor í Mosfellsbæ 2019 - Þriðjudagana 2. og 9. apríl
Dagskráin fer fram í Bókasafni Mosfellsbæjar og hefst kl. 20.00 bæði kvöldin. Léttar veitingar í boði og ókeypis aðgangur.
Meira ...

Bókasafnið opnar kl. 14 föstudaginn 29.mars.

25/03/19Bókasafnið opnar kl. 14 föstudaginn 29.mars.
Vegna fræðsluferðar starfsmanna verður Bókasafnið opið 14:00-18:00 föstudaginn 29. mars. Þetta á einnig við um lesaðstöðuna.
Meira ...

Fjölmenningarhátið í Mosfellsbæ 11.maí í Kjarna

19/03/19Fjölmenningarhátið í Mosfellsbæ 11.maí í Kjarna
Takið daginn frá! Viltu taka þátt? Hafðu samband í 898-6065 eða bokasafn@mos.is
Meira ...

Vinningshafi í febrúargetraun Bókasafnsins

12/03/19Vinningshafi í febrúargetraun Bókasafnsins
Fannar Davíð Karlsson er sannkallaður lukkunnar pamfíll! Á sjálfan sjö ára afmælisdaginn fékk hann símhringingu um að hann hefði unnið í febrúargetraun Bókasafnsins og kom til okkar að sækja pakkann sinn. Fannar Davíð fékk bókina Afi sterki og skrímslin í Kleifarvatni eftir J.K. Kolsöe. Fannar er í 1. bekk í Krikaskóla og æfir bæði handbolta og fimleika. Hann kemur reglulega til okkar í safnið með mömmu sinni og skólanum. Við óskum Fannari Davíð innilega til hamingju með vinninginn – og afmælið!
Meira ...

Tóm gleði

05/03/19Tóm gleði
Föstudaginn 22. febrúar sl. var sýningin tómir fossar opnuð í Listasal Mosfellsbæjar. tómir fossar er samsýning feðganna Björns Hauks Pálssonar og Páls Hauks Björnssonar. Björn Haukur sýnir hér í fyrsta sinn en Páll Haukur hefur verið virkur í myndlistarheiminum um þó nokkurt skeið. Þema sýningarinnar eru fossar og ýmsar birtingarmyndir þeirra. Um 70 manns mættu á opnun til að gæða sér á list og léttum veitingum. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt og „þetta hef ég aldrei séð áður“ heyrðist oftar en einu sinni á opnuninni. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar og stendur til 22. mars.
Meira ...

Marsgetraunin

01/03/19Marsgetraunin
Marsgetraunin er mætt í Bókasafnið! Spurningablaðið er sem fyrr staðsett á hringborðinu í barnadeildinni. Skilið því útfylltu í gráa póstkassann til að eiga möguleika á að vinna bók. Tilkynnt verður um verðlaunahafa í byrjun apríl. Gangi ykkur vel!
Meira ...

Janúarvinningshafi

25/02/19Janúarvinningshafi
Emma Karen Helgadóttir er fyrsti vinningshafinn í barnagetrauninni á þessu ári. Hún er 9 ára (verður 10 ára í mars) og er í 4. bekk í Krikaskóla. Hún kemur til okkar í Bókasafnið með skólanum og vinkonunum þess utan. Emmu Karen finnst svo margar bækur skemmtilegar að hún getur ómögulega valið hver er í uppáhaldi, kannski á hún bara enn eftir að finna hana. Emma Karen hefur æft bæði fimleika og fótbolta en er núna að leita sér að nýrri íþrótt til að stunda. Hún fékk bókina Silfurlykilinn eftir Sigrúnu Eldjárn í verðlaun. Við óskum Emmu Karen til hamingju!
Meira ...

Feðgar kanna fossa

19/02/19Feðgar kanna fossa
Föstudaginn 22. febrúar kl. 16-18 verður opnuð sýningin tómir fossar í Listasal Mosfellsbæjar. tómir fossar er samsýning feðganna Björns Hauks Pálssonar og Páls Hauks Björnssonar. Björn Haukur er stýrimaður að mennt og sýnir nú í fyrsta sinn en Páll Haukur er menntaður í myndlist og hefur verið virkur í sýningarhaldi bæði hérlendis og erlendis. Á sýningunni munu natúralískar myndir föðurins eiga samtal við abstraktverk sonarins svo úr verður nokkurs konar tvöfalt landslag þar sem fossar eru í aðalhlutverki. Sýningunni lýkur 22. mars. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Meira ...

Síða 6 af 8

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira