Fréttir eftir mánuðum
Stingur í stúf - sýningaropnun
31/03/21Sýningin Stingur í stúf eftir Harald Sigmundsson var opnuð föstudaginn 19. mars. Á opnuninni voru tveir gjörningar. Annars vegar mætti jólasveinninn Stúfur á svæðið og stakk sig á verkunum, hins vegar var Haraldur sjálfur með gjörning þar sem sýningargestir gátu fylgst með honum búa til málverk. Sá gjörningur mun standa yfir allt sýningartímabilið og enda með fullkláruðu verki. Síðasti sýningardagur er 16. apríl.
Meira ...10 manna fjöldatakmörk
25/03/21Vegna nýrra tilskipana um sóttvarnir takmarkast fjöldi í Bókasafni Mosfellsbæjar við 10 manns frá og með 25. mars og gildir þetta um einstaklinga fædda árið 2014 eða fyrr.
Gestir eru hvattir til að sinna erindum sínum hratt og skilmerkilega svo fleiri komist að.
Lessvæði er lokað og viðburðum hefur verið frestað.
Meira ...Stingur í stúf opnar í Listasal Mosfellsbæjar
18/03/21
Sýningin Stingur í stúf eftir Harald Sigmundsson verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 19. mars kl. 16-18. Haraldur (f. 1980) er með B.A.-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands og M.A.-gráðu í kennslufræðum frá sama skóla. Hann starfar sem myndlistarkennari í Krikaskóla í Mosfellsbæ. Haraldur hefur tekið þátt í ýmsum sýningum en þetta er fyrsta einkasýning hans í átta ár og í fyrsta sinn sem hann sýnir í Listasal Mosfellsbæjar.
Meira ...Marsgetraunin
02/03/21
Nú er komin ný barnagetraun í barnadeildina. En hafið varann á ykkur því nú er hún er troðfull af ræningjum! Við hvetjum hugrakka krakka að gera sér ferð í safnið og taka þátt. Við veitum svo einum heppnum og huguðum þátttakanda verðlaun í byrjun næsta mánaðar. Munið að starfsfólk safnsins er ávallt til búið að aðstoða.
Meira ...