logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

LISTASALUR - Tinni í túninu heima

07/04/2017

Listasalur Mosfellsbæjar hefur í mörg ár notið þess að vera í samstarfi við List án landamæra. Nú er komið að því að Ísak Óli sýni hjá okkur og ætlar hann að sýna myndir sem hann málar uppúr Tinna bókunum. Sýninguna kallar hann Tinni í túninu heima.

Ísak Óli er þekktur fyrir litríkar og skemmtilegar myndir og verður gaman að sjá sýninguna hans.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 8. apríl kl. 14 og eru allir velkomnir.
Sýningin verður í Listasalnum til 13. maí.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira