logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

LISTASALUR - Sýningaropnun - Það sem er ósagt

23/06/2017

Sunnudaginn 25. júní kl.14-17 opnar Halla Birgisdóttir nýja sýningu í Listasal Mosfellsbæjar. Sýninguna kallar hún Það sem er ósagt og skapar í salnum frásagnarrými þar sem hún velstir fyrir sér því sem er ósagt - því sem er lesið á milli lína - því sem er gefið í skyn - því sem er þagað um - því sem þarf ekki að segja upphátt - því sem við getum ekki sagt.
Halla Birgisdóttir (f.1988) býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2013. Hún hefur síðan þá haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum viða um landið og erlendis.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira