logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Scratch forritunarleikur

26/02/2019

Bókasafn Mosfellsbæjar býður upp á námskeið í vetrarleyfi grunnskóla: 
Þriðjudaginn 26. febrúar kl. 14-16 mun leiðbeinandi frá Skema kenna okkur allt sem við þurfum að vita um forritunarleikinn Scratch.

Scratch er leikur þar sem undirstöður í forritun eru kenndar á skemmtilegan og einfaldan hátt.
Fyrir þá sem hafa ekki prófað Scratch þá er markmiðið að forrita köttinn Scratch til að leika allskyns kúnstir. Kötturinn Scratch er óttalega ósjálfbjarga og getur ekki gert neitt sjálfur og þess vegna þurfum við að kenna honum allt frá grunni.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!

Ef þátttaka er mikil gæti þurft að samnýta tölvur og skiptast á.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira