logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vetrarfrí í Bókasafni Mosfellsbæjar

24/10/2019

Við bjóðum öll börn í Mosfellsbæ hjartanlega velkomin til okkar í Bókasafnið í vetrarfríinu. Í barnadeildinni verður hægt að spila, lita skemmtilegar myndir og taka þátt í getraunum.

FIMMTUDAGURINN 24. OKTÓBER - PERLUFJÖR KL. 13-15
Spjöld og perlur í boði. Atvinnustraujari mundar straujárnið. Komið og gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn!

FÖSTUDAGURINN 25. OKTÓBER - TÆKJAFORRITUN KL. 13-15
Langar þig til að prufa að forrita og stjórna hinum ýmsu tækjum? Skema mætir á svæðið og kennir tækjaforritun. Skráning á evadogg@mos.is.

Skema kemur með nokkrar ipad spjaldtölvur til að nota á námskeiðinu en þátttakendum er velkomið að koma með eigin ipad. Athugið að virkar ekki með android spjaldtölvum.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira