logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Salurinn

Listasalur Mosfellsbæjar er í hjarta bæjarins, staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.
Á hverju ári eru settar upp um tíu sýningar, jafnt reyndra listamanna
og nýgræðinga á sviðinu. Einnig er salurinn nýttur fyrir ýmsa viðburði eins og tónleika, fyrirlestra og fundi. Listasalur Mosfellsbæjar hefur það að leiðarljósi að vera virkur samkomustaður fyrir Mosfellinga og aðra gesti, bjóða upp á fjölbreyttar sýningar listamanna og vinna þannig að framþróun myndlistar á Íslandi. 

Salurinn er rekinn af Mosfellsbæ og hefur verið starfræktur frá 2005. Hann er opinn á afgreiðslutíma Bókasafnsins og er gengið inn í salinn úr safninu. Salurinn er um 80 fm2 að stærð og honum fylgir eldhúsaðstaða með vaski og ísskáp, aðgengi að fatahengi og salerni. Einnig geta fylgt salnum borð og 75 stólar. Skjávarpi er í salnum og sýningartjald. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla. 

Listasalur Mosfellsbæjar er bjartur og rúmgóður salur staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningar standa að jafnaði um fjórar vikur. Öllum er heimilt að sækja um sýningarpláss.

Búið er að úthluta sýningum fyrir árið 2024. 

 

Listasalur Mosfellsbæjar
Þverholt 2
270 Mosfellsbær

S: 566 6822
Netfang: listasalur@mos.is
www.bokmos.is/listasalur
www.facebook.com/listasalurmoso
www.instagram.com/listasalur_moso

 

 

Fréttamynd26/01/24

Safnanótt í Bókasafni Mosfellsbæjar

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.–3. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þremur meginstoðum: Safnanótt, Sundlau...
18/01/24

Jakob Veigar Sigurðsson sýnir í Listasal Mosfellsbæjar

Fjöl­mennt var á opn­un sýn­ing­ar­inn­ar „I think, th­erefore I’m fucked“ sem fór fram laug­ar­dag­inn 6. janú­ar.
16/08/23

Sýningaropnun Fjallaloft 11.8.2023

Fjölmenn sýningaropnun í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 11. ágúst. Henrik Chadwick Hlynsson opnaði fyrstu einkasýningu sína Fjallaloft. Sýningin samanstendur af málverkum af náttúru Íslands. Miki...
Skoða fréttasafn

Listasalur Mosfellsbæjar

Auglýst er eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2024.

Sótt er um á íbúagátt Mosfellsbæjar ibuagatt.is undir „umsóknir“.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2023.

Listasalur Mosfellsbæjar er bjartur og rúmgóður salur staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Sýningar standa að jafnaði um fjórar vikur. Öllum er heimilt að sækja um sýningarpláss.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira