logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Boðskort á sýningaropnun laugardaginn 17.10. kl.15

20/10/2015
Frumdrættir og fyrirmyndir
Myndlistarsýningin Frumdrættir og fyrirmyndir opnar í Listasal Mosfellsbæjar í húsakynnum Bókasafnsins í Kjarnanum Þverholti 2 Mosfellsbæ laugardaginn 17. okt. 2015 kl. 15.00.

Sýningarheitið vísar til teikningarinnar sem tjáningarmiðils. Sýningin er samstarfsverkefni og stefnumót listamannanna Guðbjargar Lindar, Jean Larson, Kristínar Geirsdóttir og Ólafar Oddgeirsdóttur. Viðfangsefni og hugmyndaleg nálgun listamannanna eru ólík en verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að í þeim eru kannaðir og nýttir möguleikar teikningarinnar.

Listamennirnir eiga að baki langan og fjölbreyttan feril, fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis. Guðbjörg, Kristín og Ólöf hafa oftunnið saman en þetta er í fyrsta sinn sem Jean Larson kemur til liðs við þær. Jean er frá Michigan í Bandaríkjunum og er mikill heimshornaflakkari. Hún hefur um nokkurt skeið dvalið á Íslandi og á nú athvarf á Flateyri þar sem hún hefur unnið verkin fyrir þessa sýningu.

Boðið verður upp á listamannaspjall laugardaginn 31.október kl 15.00
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira