logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kristján og Loji umpotta

22/05/2018
Föstudaginn 11. maí síðastliðinn var opnuð samsýningin Kristján og Loji umpotta í Listasal Mosfellsbæjar. Sýningin er hluti af hátíðinni List án landamæra. Kristján Ellert Arason er fæddur árið 1958 og hefur síðustu níu ár unnið að myndlist á vinnustofum Sólheima. Loji Höskuldsson fæddist árið 1987 og er með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Frá haustinu 2017 hafa þessir tveir listamenn unnið að verkum fyrir sýninguna Kristján og Loji umpotta. Listamennirnir hafa þó einungis hist tvisvar þessa átta mánuði sem þeir hafa unnið saman þar sem Loji er búsettur í Svíþjóð. Samvinnan hefur þó gengið prýðilega og hefur orðið að nokkurs konar leik. Þannig saumar annar út hluta myndarinnar, t.d. blómapottinn eða blómið, og sendir hinum, sem klárar myndina. Kristján og Loji eru miklir áhugamenn um útsaum og í verkunum má sjá fjölda mismunandi saumspora, bæði vel þekkt og sjaldséð. Sýningargestum var boðið upp á hvítvín, kók í gleri og Prins Póló og ríkti mikil gleði. Sýningin stendur til 15. júní og við hvetjum fólk til að láta þessa flottu sýningu ekki fara fram hjá sér.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira