logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vinn, Vinn í Listasal Mosfellsbæjar

03/07/2020


Sara Björk Hauksdóttir opnar sýningu sína Vinn, vinn í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 3. júlí kl. 16:00. Boðið verður upp á léttar veitingar á opnunni sem lýkur kl. 18:00.

Síðasti dagur sýningar er 31. júlí. Opið er kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2.

Sara Björk Hauksdóttir (f. 1977) stundar nám við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og stefnir á útskrift næsta vor. Hún lauk námi í listmálun við listaskólann Idun Lovén í Stokkhólmi árið 2015 og við lýðháskólann Wik í Uppsala árið 2013.

Sara hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og í Svíþjóð og einnig sett þar upp tvær einkasýningar, en þetta er fyrsta einkasýning hennar hérlendis.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira