logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Einkasýning Ragnheiðar Sigurðardóttur Bjarnarson, Ljósbrot, er fyrsta sýning ársins hjá Listasal Mosfellsbæjar.

07/01/2022


Einkasýning Ragnheiðar Sigurðardóttur Bjarnarson, Ljósbrot, er fyrsta sýning ársins hjá Listasal Mosfellsbæjar. Sýningin hefst föstudaginn 7. janúar og lýkur 4. febrúar.

Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson (f. 1986) er alin upp í Mosfellsbæ. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands sem danshöfundur árið 2009, með meistarapróf í gjörningalist í almenningsrými frá Gautaborgarháskóla árið 2014 og með kennsluréttindi frá Listaháskóla Íslands árið 2017.

Ragnheiður hefur haldið fjölda sýninga, bæði hér á landi og erlendis. Hún fæst aðallega við myndverk en einnig gjörninga og dansverk. Ragnheiður er í samstarfi með fjölþjóðlega hópnum Onirism Collective og dúettnum RebelRebel. Árið 2018 stofnaði hún galleríið Midpunkt í Hamraborg ásamt Snæbirni Brynjarssyni. Út frá því samstarfi varð árið 2021 til Hamraborg Festival. Galleríið er í pásu eins og er en stefnt er að því að halda aðra Hamraborg Festival á þessu ári.

Sýningin Ljósbrot er hluti af stærra rannsóknarverkefni Ragnheiðar á hugtakinu „hægt“.Rannsóknin á uppruna sinn í göllum samfélagsins og leitar að því að skapa ró, yfirvegun, núvitund, hægar hreyfingar og hugsanir. Á sýningunni koma saman verk af ýmsum toga (vidjó, skúlptúrar, lágmyndir, málverk) sem leyfa upplifun áhorfenda að bylgjast um rýmið. Hvert og eitt verk varpar sínu litrófi, sínum tilfinningum. Heildin myndar fallegan fjallgarð en þó má sjá sérstæðu hvers og eins verks skína í gegn.

Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar, Þverholti 2. Opið er kl. 9-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Athugið að engin formleg opnun verður haldin vegna Covid-19.

Grímuskylda. Ókeypis inn og öll velkomin.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira