logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Listamannaspjall | Þorgerður Jörundsdóttir - 18. júlí kl.17-18.

18/07/2024
Listasalur Mosfellsbæjar býður ykkur velkomin í létt spjall og leiðsögn í tengslum við sýninguna Alltof mikil náttúra eftir Þorgerði Jörundsdóttur.

Sýningin „Alltof mikil náttúra“ er framhald sýningarinnar „Of mikil náttúra“ þar sem áfram er leitast við að fjalla um líffræðilega fjölbreytni náttúrunnar á tímum hamfarahlýnunar. Við sem tilheyrum mannkyninu viljum gjarnan gleyma því að við erum hluti tegundaflórunnar sem byggir þessa jörð. Við erum lífverur og háð umhverfinu rétt eins og allar aðrar lífverur. Áhrif okkar á náttúruna og allt umhverfið eru nú orðin slík að talað er um mannöld.

Sýningin stendur til og með 26. júlí.
Opið er á milli kl. 9-18 alla virka daga.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira