logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ritsmiðja: Skrifað út frá staðsetningu

12.10.2024 12:00
Skáldin og sviðslistakonurnar Eva Rún og Ragnheiður Harpa kenna ritsmiðju þar sem þemað er að skrifa út frá staðsetningu.

Smiðjan fer fram tvo laugardaga; 12. og 19. október kl. 12-16 í Bókasafni Mosfellsbæjar.

Í ritsmiðjunni verða gerðar tilraunir í skrifum út frá vissum staðsetningum. Þemað að þessu sinni er Mosfellsbær og bókasöfn. Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum hliðum skapandi skrifa og læra að nýta hin ýmsu tól úr verkfærakistu höfundarins.

Leiðbeinendur eru Eva Rún Snorradóttir og Ragnheiður Harpa Leifsdóttir. Báðar starfa jöfnum höndum sem sviðslistakonur og rithöfundar og eru með vinnustofunni að leita leiða til að prófa áfram verkfæri úr sviðslistunum til að nýta í skrif sem enda ekki endilega í sviðslistaverki heldur bókmenntaverki.

Smiðjan er ókeypis en takmörkuð pláss í boði.
Skráning fer fram á bokasafn@mos.is
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira