Fréttasafn
2024
janúar, mars, apríl, maí, júní, júlí.
2023
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
BÓKASAFN - Í brennidepil: BANDARÍSKAR BÓKMENNTIR III. hluti
06/11/2017Sherman Joseph Alexie (1966-) er einn af þeim þekktustu og skrifar bæði ljóð, smásögur og skáldsögur byggðar á eigin reynslu úr æsku á náttúruverndarsvæði Spoken-frumbyggja. Hann hefur unnið til fjölda bókmenntaverðlauna. Í skrifum sínum veltir Alexie aðallega fyrir sér þremur spurningum; hvað felur það í sér að vera frumbyggi í dag, að vera karlmaður af frumbyggjaættum og búa á náttúruverndarsvæði frumbyggja?
Afrísk-amerískar bókmenntir eiga upphaf sitt að rekja allt til áranna fyrir stjórnarbyltingu nýlendunnar. Rithöfundar af afrískum uppruna hafa skrifað bókmenntir sem eru áhrifamiklar; sýna hárfínt samfélagslegt innsæi og glögga sögu og sjálfsmynd Bandaríkjanna. Meðal þekktustu rithöfunda í þeirra röðum eru tvær konur.
Toni Morrison (1931-) sem skrifaði m.a. Ástkær „Beloved“ (1987) og Söngur Salómons „Song of Solomon“ (1977). Morrison varð þekkt fyrir að skoða reynslu svartra innan samfélags þeirra, og þá sérstaklega reynslu svartra kvenna. Hún hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1993.
Alica Walker (1944-) sem skrifar skáldsögur, smásögur og ljóð með sérstakan fókus á konur, sem gefur einstaka innsýn í afrísk-amerískan menningarheim. Purpuraliturinn „The Color Purple“ (1982) er hennar þekktasta bók og færði henni Pulitzer verðlaunin.
Fjölmenning jókst til muna eftir að létt var á lögum um innflytjendur, eins og bókmenntir seinni hluta 19. aldar bera vitni um. Margir innflytjendarithöfundar gefa góða innsýn í gamla menningarheima og að sama skapi dýpri skilning á nýrri menningu.
Þrátt fyrir að margir þessir rithöfundar taki sérstaklega fyrir sinn menningarbakgrunn þá hafa þeir átt stóran þátt í að breyta bandarískum bókmenntum, sem endurspegla mósaík menningarheima sameinaða undir fána stórveldis.