01/12/15
„Trúarbrögð og lífsviðhorf“ verða í brennidepli okkar þennan mánuðinn og er þar stiklað á því helsta, en trúarbrögð heims skiptast ýmist í eingyðistrú, fjölgyðistrú eða trúleysi.
Kristni er ein elsta og fjölmennasta trú veraldar með um 2,1 milljarð manna og fylgir Íslam fast á eftir með 1,5 milljarð en þessi trúarbrögð, ásamt Gyðingdómi og Bahá‘í trú, eiga það sameiginlegt að vera eingyðistrúarbrögð
Meira ... 20/11/15
Árlegt bókmenntahlaðborð Bókasafns Mosfellsbæjar var haldið þriðjudaginn 10. nóvember. Að þessu sinni kynntu bækur sínar rithöfundarnir Auður Jónsdóttir með bókina Stóri Skjálfti, Árni Bergmann með sjálfsævisögu sína - Eitt á ég samt : endurminningar, Bjarki Bjarnason með skáldsöguna Spiritus fossis : saga með myndum, Jón Kalman Stefánsson með Eitthvað á stærð við alheiminn : ættarsaga og loks Kristín Helga Gunnarsdóttir með sína fyrstu bók fyrir fullorðna
Meira ... 11/11/15
Í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum var dúóið Hundur í óskilum fengið af Rithöfundasambandinu til að búa til dagskrá tengda Halldóri. Bókasafnið greip tækifærið
Meira ... 03/11/15
Nýir málaflokkar í útstillingu
Setur fókusinn á önnur lönd, gefur innsýn í aðra menningarheima og ýmis alþjóðleg málefni. Þetta eru ýmist ævisögur, æviþættir, skáldsögur, ljóð, ferðasögur eða sagnfræði, bæði þýðingar og á ensku.
„Raddir Indlands“ er yfirskriftin í nóvember
Meira ... 02/11/15
Áfram höldum við og nú er komið að nýrri getraun fyrir krakkana. Spurningablaðið er sem fyrr staðsett á hringborðinu í barnahorninu. Við hvetjum alla krakka til að reyna fyrir sér enda frábær bókarverðlaun í boði.
Meira ... 29/10/15
Í tilefni af Degi myndlistar bjóða listamennirnir sem sýna í Listasal Mosfellsbæjar uppá listamannaspjall laugardaginn 31. október kl. 15:00.
Listamennirnir eru Guðbjörg Lind, Kristín Geirsdóttir, Jean Larson og Ólöf Oddgeirsdóttur.
Meira ... 20/10/15
Miðvikudaginn 21. október. kl. 10-12 verður Bókasafnið lokað vegna starfsmannafundar
Meira ... 20/10/15
Frumdrættir og fyrirmyndir. Myndlistarsýningin Frumdrættir og fyrirmyndir opnar í Listasal Mosfellsbæjar í húsakynnum Bókasafnsins í Kjarnanum Þverholti 2 Mosfellsbæ laugardaginn 17. okt. 2015 kl. 15.00.
Meira ... 13/10/15
Septembergetraun Bókasafns Mosfellsbæjar gekk vonum framar og við þökkum kærlega þeim fjölmörgu sem tóku þátt. Vinningshafinn að þessu sinni var hin 12 ára Ingigerður Sunna. Hún fékk í verðlaun nýútgefna bók, Grimma tannlækninn, eftir David Walliams. Við óskum Ingigerði innilega til hamingju og hvetjum alla krakka til taka þátt í októbergetrauninni okkar sem nú er í fullum gangi.
Meira ... 09/10/15
Á laugardag kl. 15 mun Kristín Þorkelsdóttir leiða gesti um sýningu sína ÁSÝND samferðamanna á lífsfleyinu í Listasal Mosfellsbæjar. Kristín mun segja frá einstökum verkum, tilurð þeirra og vinnuferli.
Meira ... Síða 1 af 3