logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

BÓKASAFN - Í brennidepli: Jóla hvað? Desember 2017

06/12/2017

Desember í aðdraganda jólahátíðar er oft annasamur tími fyrir flesta, en stundum getur verið gott að gleyma sér aðeins, láta fara vel um sig og kíkja í bók. Bækurnar í brennidepli hafa að þessu sinni einhverja tengingu eða tilvísun í jól, allt frá skáldsögum, glæpasögum og ævisögum til fræði-, ljóða- og hljóðbóka. 

Oft getur verið skemmtilegt fyrir fjölskylduna að hlusta saman á hljóðbók, jafnvel á meðan verið er að baka, skreyta eða pakka inn gjöfum. Þá eru Íslenskar þjóðsögur úr safni Jóns Árnasonar alltaf klassískar; ekki síst Álfa- og jólasögur. Upplesnar sígildar jólasögur og Upplesnar sígildar jólasögur á aðventunni eru klassískar jólasögur frá ýmsum löndum sem gefa einstaka stemningu í skammdeginu.


Saga jólanna er bók eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing og fjallar um jólahátíðina fyrr og síðar á Íslandi og víðar. Hér rekur hann sögu jólanna frá upphafi þegar allir, fátækir og ríkir, héldu ljósahátíð í skammdeginu. Einstakur fróðleikur fyrir þá sem vilja vita meira um hefðina hér á landi og hvernig hún hefur breyst í tímans rás.

Meðal ævisagna má finna bókina Jólaminningar: hátíð ljóssins í huga Íslendinga sem Jónas Ragnarsson tók saman. Hér birtast frásagnir um jólin á árum áður, og er rætt við tólf þjóðþekkta Íslendinga um minningar þeirra frá bernskujólum. Einnig er rifjaður upp tíðarandi jólamánaðarins frá upphafi til loka tuttugustu aldarinnar.

Ýmis skáldverk með skírskotun til jóla er að finna á hinu ástkæra, ylhýra móðurmáli, þýdd og frumsamin. Morgunverður á Tiffany‘s eftir Truman Capote mætti telja klassík og var sagan kvikmynduð 1961 með Audrey Hepburn í aðalhlutverki.

Ráðgátan um jólabúðinginn og fleiri sögur eftir A. Christie í þýðingu Ragnars Jónassonar er fyrir þá sem hafa gaman af klassískum sakamálasögum. „Hercule Poirot glímir við óvenjulega ráðgátu í jólaleyfi á ensku sveitasetri. Tvö önnur mál reyna á „litlu gráu heilasellurnar“ hans Poirot. Fröken Marple kemur einnig við sögu.“

Eiríkur Brynjólfsson skrifaði bókina Undarlegar og öðruvísi jólasögur 2016. Þetta eru jólasögur fyrir fullorðna þar sem „frelsarinn reynir að koma vitinu fyrir ýmsa sem eru komnir á fremsta hlunn með að fremja illvirki. Eða þannig! Meðal þeirra sem koma við sögu eru Lítil stúlka með eldspýtur, Litla gula hænan, nornin í Hans og Grétu og fátæk hjón sem ætla að ræna banka.“

Ekki má gleyma að leyfa notalegri jólatónlist að hljóma í desember. Úrval jóladiska er til útláns í Bókasafninu; njótið aðventunnar.

Nú mega jólin koma fyrir mér

Á fyrsta sunnudegi aðventunnar
ég ek til kaupmannsins í einum rykk
því þó að fjárhirslurnar gerist grunnar
ég geri vel við mig í mat og drykk.
Ég kaupi sætabrauð og súkkulaði
súpur og ávexti og kjöt og smér
klyfjaður góssi burt ég held með hraði
og hleð í skottið allskyns gúmmelaði
þá mega jólin koma fyrir mér.

 

Á öðrum sunnudegi aðventunnar
alhliða hreinsunarstarf á sér stað
þá söngperlur ég söngla ýmsum kunnar
og síðan læt ég renna í funheitt bað.
Þá allar spjarirnar ég af mér reiti
og öllum deginum við þvotta ver
ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti
ég skef úr eyrum svona að mestu leyti
þá mega jólin koma fyrir mér.
Á þriðja sunnudegi aðventunnar
andlegu hliðinni ég geri skil
en til að virka skulu viskubrunnar
sko vera rakir eða þarumbil.
Það stoðar lítt að sitja einn með ekka
örlögum heimsins velta fyrir sér
en ég verð heimsins mesta mannvitsbrekka
á meðan ég fæ bara nóg að drekka
þá mega jólin koma fyrir mér.
Á fjórða sunnudegi aðventunnar
ég æði um húsið til að gera allt fínt
en skreytingarnar eru ansi þunnar
því árans skrautið virðist mest allt týnt.
Ég skvetti sápuvatni á gólf og glugga
og gref upp nokkuð heillegt sængurver
við bústnum rykmaurum ég reyni að stugga
og ryð svo þvottinum í næsta skugga
þá mega jólin koma fyrir mér.
Loks þegar aðfanganna dag að drífur
ég dreg fram spariföt og flibbahnapp
svo þegar skyrtukraginn stendur stífur
ég stari í spegilinn og gef mér klapp.
Því jólin eru tími til að þakka
og taka ofan fyrir þeim sem ber
á meðan ég hef matarögn að smakka
og meðan ég fæ risavaxinn pakka
þá mega jólin koma fyrir mér.
(Lag og texti: Sigurður Guðmundsson og Memfismafían)
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira