logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Janúargetraunin

02/01/2023

Við hefjum nýtt ár á nýrri barnagetraun í bókasafninu.

Janúargetraunin beinir sjónum sínum að lestarþjálfunarkassanum í barnadeildinni en þar má finna bækur sem hentað geta þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í lestri.
Líkt og venja er verður einn heppinn þátttakandi verðlaunaður með bók. Finna má þátttökuseðil með spurningunum þremur á gula borðinu í barnadeildinni.

Ekki gleyma að það má alltaf biðja starfsfólk safnsins um aðstoð, það gæti lumað á góðri vísbendingu.
Gangi ykkur vel!

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira