logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Síðasta sögustund vetrarins fór fram miðvikudaginn 22. maí

27/05/2024

Síðasta sögustund vetrarins fór fram miðvikudaginn 22. maí og var með frekar óhefðbundnu sniði. Í stað þess að hlusta á upplestur fengum við leikhópinn Mikil ósköp í heimsókn sem setti upp sýninguna "Ef ég væri grágæs". Sýningin fjallaði um veruna Grjótgerði sem þráði ekkert meira en að vera grágæs. Áhorfendur fengu að fylgjast með hugljúfri leit Grjótgerðar að gæsinni góðu en á leiðinni lærði hún ýmislegt um sig sjálfa sem kom bæði henni og áhorfendum skemmtilega á óvart.

Við þökkum öllum hjartanlega fyrir komuna í safnið og hlökkum til að taka upp sögustundarþráðinn aftur í haust 🌞
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira