logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Stingur í stúf opnar í Listasal Mosfellsbæjar

18/03/21Stingur í stúf opnar í Listasal Mosfellsbæjar
Sýningin Stingur í stúf eftir Harald Sigmundsson verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 19. mars kl. 16-18. Haraldur (f. 1980) er með B.A.-gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands og M.A.-gráðu í kennslufræðum frá sama skóla. Hann starfar sem myndlistarkennari í Krikaskóla í Mosfellsbæ. Haraldur hefur tekið þátt í ýmsum sýningum en þetta er fyrsta einkasýning hans í átta ár og í fyrsta sinn sem hann sýnir í Listasal Mosfellsbæjar.
Meira ...

Marsgetraunin

02/03/21Marsgetraunin
Nú er komin ný barnagetraun í barnadeildina. En hafið varann á ykkur því nú er hún er troðfull af ræningjum! Við hvetjum hugrakka krakka að gera sér ferð í safnið og taka þátt. Við veitum svo einum heppnum og huguðum þátttakanda verðlaun í byrjun næsta mánaðar. Munið að starfsfólk safnsins er ávallt til búið að aðstoða.
Meira ...

Heldur myndlistarsýningu 85 ára gömul

09/02/21Heldur myndlistarsýningu 85 ára gömul
Steinunn Marteinsdóttir, Mosfellingur með meiru, heldur næstu sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í tilefni 85 ára afmælis síns 18. febrúar. Hún hefur unnið að myndlist í marga áratugi og er einn helsti leirlistarmaður landsins. Steinunn hefur síðustu ár lagt stund á málun í vaxandi mæli.
Meira ...

Febrúargetraunin

01/02/21Febrúargetraunin
Nammi namm! Barnagetraunin skartar nú þremur glænýjum spurningum um alls kyns gúmmelaði í barnabókum. Þátttökuseðlar eru sem fyrr staðsettir á gula borðinu í barnadeildinni. Dregið verður úr útfylltum seðlum í byrjun næsta mánaðar og hlýtur einn heppinn sælkeri verðlaun.
Meira ...

Bókasafnið er opið og nú mega 20 gestir vera í safninu hverju sinni.

19/01/21Bókasafnið er opið og nú mega 20 gestir vera í safninu hverju sinni.
Vegna tilskipana um sóttvarnir takmarkast fjöldi gesta við 20 manns til og með 17. febrúar. Gestir eru hvattir til að sinna erindum sínum hratt og skilmerkilega svo fleiri komist að. Lessvæði er lokað og viðburðum hefur verið frestað.
Meira ...

Síða 4 af 4

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira