Fréttir eftir mánuðum
BÓKASAFN - Nýjustu fréttir úr tímaritahorni
19/09/17
Ljósmyndatímaritið Digital Photo rann saman við tímaritið Practical Photography og kemur nú út undir því nafni – Bókasafnið er nú komið í áskrift að því tímariti
Meira ...BÓKASAFN - Í brennidepli: BANDARÍSKAR BÓKMENNTIR I. hluti
12/09/17
- stiklað á stóru -
Bandarískar bókmenntir hafa mótast af sögu landsins, allt frá nýlendutímabilinu að myndun sambandsríkjanna, sem sameinaði þjóðina undir einum fána. Hægt er að rekja bókmenntir þjóðarinnar að upphafi 16. aldar þegar Evrópubúar fluttust búferlum til Norður-Ameríku. Þar var markmið hinna ólíku hópa að skapa fyrirmyndarsamfélög í hinum nýja heimi.
Meira ...BÓKASAFN - Leshópur eldri borgara hittist 2. október 2017
12/09/17
Leshópurinn hittist mánudaginn 2. október kl. 10:30 að Eirhömrum, Hlaðhömrum 2.
Fyrsta mánudag hvers mánaðar kl. 10:30 hittumst við og spjöllum um valdar bækur.
Allir eldri borgarar velkomnir.
Meira ...BÓKASAFN - Leikhópurinn Lotta
11/09/17
Það var svo sannarlega líf og fjör í Bókasafni Mosfellsbæjar 25. ágúst síðastliðinn þegar Leikhópurinn Lotta flutti Söngvasyrpu og skemmti 5 ára börnum í bænum með sögum og söng.
Meira ...LISTASALUR - Að öðru leyti eftir ósk skáldsins
08/09/17
Þann 7. september var opnuð ný sýning í Listasal Mosfellsbæjar sem ber heitið Að öðru leyti eftir ósk skáldsins, sýning um tónleikahald á Gljúfrasteini á fimmta og sjötta áratugnum. Tómas R. Einarsson og Óskar Guðjónsson léku ljúfa tóna fyrir og eftir dagskrá. Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður stjórnar Gljúfrasteins opnaði sýninguna, Sergei Andriashin flutti kveðju frá rússneska sendiráðinu á Íslandi og Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir fjallaði um tilurð sýningarinnar. Tónlistarfólk á vegum rússneska sendiráðsins flutti verk eftir Sergei Rachmaninov og Pjotr Tchaikovsky.
Meira ...BÓKASAFN - Bókagetraun barnanna er komin úr sumarfríi
08/09/17
Við í Bókasafni Mosfellsbæjar vonum að þið hafið notið sumarsins og séuð tilbúin í nýja getraun. Á hringborðinu í barnadeildinni er blað með þremur spurningum. Svarið þeim rétt, merkið vel og vandlega og setjið í græna póstkassann. Dregið verður í byrjun október og vinningshafinn fær bók að launum. Gangi þér vel!
Meira ...