logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

BÓKASAFN - Rafbókasafnið

30/05/17BÓKASAFN - Rafbókasafnið
Bókasafn Mosfellsbæjar býður nú lánþegum sínum að fá lánaðar bækur rafrænt. Rafbókasafnið er langþráð viðbót í bókasafnaflóruna. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safnkosturinn fjölbreyttur,
Meira ...

BÓKASAFN - 9. bekkingar í heimsókn í Bókasafninu

19/05/17BÓKASAFN - 9. bekkingar í heimsókn í Bókasafninu
Í morgun fengum við hressa og káta krakka í heimsókn í Bókasafnið. Þetta voru 9. bekkingar úr Lágafellsskóla og Varmárskóla sem komu til að hlusta á tvo þaulreynda og skemmtilega fyrirlesara sem ræddu við krakkana um sjálfsmynd og sjálfsstyrkingu.
Meira ...

LISTASALUR - Tónleikar í Listasal Mosfellsbæjar

19/05/17LISTASALUR -  Tónleikar í Listasal Mosfellsbæjar
Listaskóli Mosfellsbæjar hefur um árabil verið í samstarfi við Bókasafnið og Listasal Mosfellsbæjar vegna tónleika nemenda. Nú í maí hafa verið fernir tónleikar í Listasalnum og fjöldi nemenda komið fram m.a. píanó-, flautu- og fiðlunemendur. Það er mikilvægur hluti af námi tónlistarnemenda að koma fram og má segja að margir sigrar séu unnir á hverjum tónleikum. Gestir Bókasafnsins verða varir við óminn úr salnum og hafa margir gaman að.
Meira ...

BÓKASAFN - Vinningshafinn í aprílgetrauninni

16/05/17BÓKASAFN - Vinningshafinn í aprílgetrauninni
Það var hin níu ára gamla Aþena Rán Stefánsdóttir sem sigraði í aprílgetrauninni okkar. Hún fékk í verðlaun bókina Atlasinn minn. Undur veraldar. Aþena Rán er í Varmárskóla og kemur oft í Bókasafnið. Hún segist alltaf taka þátt í getraununum okkar og það borgaði sig svo sannarlega í þetta sinn. Auk þess að vera mikill lestrarhestur stundar Aþena Rán bardagalistina Taekwondo. Flott stelpa hér á ferð!
Meira ...

LISTASALUR - Litir eins og tónlist 20. maí - 17. júní 2017

16/05/17LISTASALUR -  Litir eins og tónlist 20. maí - 17. júní 2017
Ný sýning verður í Listasal Mosfellsbæjar frá laugardeginum 20. maí. Á sýningunni sem heitir Litir eins og tónlist eru sýnd myndverk Sigurðar Hauks Lúðvígssonar (1921-2006).
Meira ...

BÓKASAFN - Lokafundur Leshópsins

16/05/17BÓKASAFN - Lokafundur Leshópsins
Síðustu ár hefur verið starfandi Leshópur í samstarfi Félags eldri borgara og Bókasafns Mosfellsbæjar. Hópurinn hittist mánaðarlega frá september til maí. Fastur fundarstaður er á Hlaðhömrum. Sú hefð hefur skapast að lokaskiptið sem hópurinn hittist sé í Bókasafni Mosfellsbæjar og býður safnið heim rithöfundi og einnig er boðið uppá kaffi og eitthvað með því. Að þessu sinni var það rithöfundurinn Auður Ava Ólafsdóttir sem sótti hópinn heim. Hópurinn hafði lesið Afleggjarann eftir hana og sumir einnig lesið fleiri bækur hennar. Áttum við öll frábæra stund með Auði Övu og þökkum við henni kærlega fyrir komuna.
Meira ...

BÓKASAFN - Síðasta getraunin í bili

03/05/17BÓKASAFN - Síðasta getraunin í bili
Nú er komin ný getraun og er hana að finna á hringborðinu í barnadeildinni. Svaraðu þremur spurningum, merktu svarblaðið með fullu nafni, aldri og heimilisfangi og settu svo í græna póstkassann á borðinu. Eins og vanalega eru flott bókarverðlaun í boði. Þetta verður síðasta getraunin í bili því bráðum hefst sumarlesturinn. Við hvetjum alla krakka til að taka þátt í þeim skemmtilega viðburði ekki síður en maígetrauninni.
Meira ...

BÓKASAFN - Í brennidepli: ÍRSKAR BÓKMENNTIR – MAÍ 2017

02/05/17BÓKASAFN - Í brennidepli: ÍRSKAR BÓKMENNTIR – MAÍ 2017
May Day, eða maí-dagur, tengist keltneska hátíðisdeginum Lá Bealtaine á Írlandi. Áður fyrr markaði Lá Bealtaine upphaf nýrrar árstíðar í byrjun maí þegar blóm og ávaxtatré byrjuðu að springa út. Eins og á Íslandi er 1. maí, Lá an Lucht Oibre, frídagur verkafólks í Írska lýðveldinu. Haldið er upp á keltnesku maíhátíðina með því að kveikja í stórum bálköstum með úrvali viðartegunda. Viðartegundirnar eru taldar hafa mismunandi dulræna merkingu og var áður litið svo á að þær hefðu mikilvægu hlutverki að gegna fyrir frjósemi jarðar og búfénaðar á komandi ári. Maí er þurrasti árstíminn á Írlandi. Á eftir grísku og latínu teljast írsku bókmenntir til elstu bókmennta Evrópu, allt frá fjórðu eða fimmtu öld. Írskar bókmenntir má í raun flokka á tvo vegu; bókmenntir sem skrifaðar eru á ensku frá tímabilinu um 1690, og svo þær bókmenntir á írsku (gelísku) sem flokkast undir keltneskar bókmenntir.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira