10.06.2024 13:10Lokað á laugardögum í sumar til og með 17.ágúst.
Meira ... 27.05.2024 12:38![Síðasta sögustund vetrarins fór fram miðvikudaginn 22. maí](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/Gragas1.jpg?proc=150x150)
Síðasta sögustund vetrarins fór fram miðvikudaginn 22. maí og var með frekar óhefðbundnu sniði. Í stað þess að hlusta á upplestur fengum við leikhópinn Mikil ósköp í heimsókn sem setti upp sýninguna "Ef ég væri grágæs".
Meira ... 17.05.2024 12:41![Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað mánudaginn 20. maí.](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/2hvitasunna_2024.jpg?proc=150x150)
Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað mánudaginn 20. maí, annan í hvítasunnu
Meira ... 08.05.2024 12:34![Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað 9. maí.](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/uppstigningar24.jpg?proc=150x150)
Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað fimmtudaginn 9. maí, uppstigningardag
Meira ... 06.05.2024 13:14![Vissir þú....](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/vissirTu.jpg?proc=150x150)
...að íbúum Mosfellsbæjar stendur til boða ókeypis bókasafnsskírteini á safninu sínu?
Meira ... 30.04.2024 15:19![Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað 1. maí.](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/1.mai.jpg?proc=150x150)
Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað 1. maí.
Meira ... 16.04.2024 10:28![Velkomin á opnun sýningar Hönnu Dísar Whitehead “Eiginleikar - Attributes” í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 20. Apríl kl 14:00 - 16:00.](/library/Myndir-Bokasafn/Vidburdir/Eiginleikar_listasalur.jpg?proc=150x150)
Velkomin á opnun sýningar Hönnu Dísar Whitehead “Eiginleikar - Attributes” í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 20. Apríl kl 14:00 - 16:00.
Meira ... 19.03.2024 14:31![Opnunartími yfir páska 2024](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/opnunart%c3%admi%20-%20p%c3%a1skar.jpg?proc=150x150)
Skírdagur - LOKAÐ
Föstudagurinn langi - LOKAÐ
Laugardagur 30. mars - opið milli 12-16
Annar í páskum - LOKAÐ
Meira ... 15.03.2024 10:51![Lína Langsokkur mætti óvænt á sögustund](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/Barnastarf_sogustund_Lina.jpg?proc=150x150)
Við fengum heldur betur skemmtilega heimsókn í sögustundina okkar á miðvikudaginn.
Eftir að hafa lokið við að lesa nokkrar sögur um hina uppátækjasömu Línu langsokk, birtust Lína, Hr. Níels, Anna og Keli óvænt í safninu!
Meira ... 29.01.2024 13:36![Rafbókasafnið - Tímarit](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/rafbokasafnid_180.png?proc=150x150)
Vissir þú að nú er hægt að fá tímarit á Rafbókasafninu?
Meira ... 26.01.2024 11:59![Safnanótt í Bókasafni Mosfellsbæjar](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2024/SAFNANOTT_banner.png?proc=150x150)
Vetrarhátíð verður haldin dagana 1.–3. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þremur meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljóslistaverkum. Notaleg stemning mun ráða ríkjum á Safnanótt í Bókasafni Mosfellsbæjar þetta árið. Safnið verður opið til kl. 20.
Meira ... 18.01.2024 12:06![Jakob Veigar Sigurðsson sýnir í Listasal Mosfellsbæjar](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Listasalur/Plakat_ithinkthereforeiamfucked.png?proc=150x150)
Fjölmennt var á opnun sýningarinnar „I think, therefore I’m fucked“ sem fór fram laugardaginn 6. janúar.
Meira ... 12.12.2023 17:45![Jólakveðja og afgreiðslutími um hátíðarnar](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/jolakvedja2023.png?proc=150x150)
Jólakveðja og afgreiðslutími um hátíðarnar
Meira ... 01.12.2023 11:56![Desembergetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/jolagetraun_desember23.png?proc=150x150)
Jólaútgáfa af barnagetrauninni er nú komin í loftið.
Eins og gefur að skilja eru spurningarnar með jólalegu ívafi og ættu jólabörn ekki að eiga í neinum vandræðum með þær.
Meira ... 27.11.2023 14:40![Höfundar sækja safnið heim](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/bokm.hlad.15.nov2023_banner2.jpg?proc=150x150)
Bókmenntahlaðborð Bókasafns Mosfellsbæjar var haldið miðvikudaginn 15. nóvember 2023.
Laugardaginn 18. nóvember var svo komið að Bókmenntahlaðborði barnanna.
Meira ... 03.11.2023 11:01![Nóvembergetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/family01.jpg?proc=150x150)
Nóvembergetraunin er hafin! Nú spyrjum við um þrjár ansi ólíkar fjölskyldur sem allar hafa komið fyrir í barna- og ungmennamenningu síðustu ára.
Meira ... 27.10.2023 13:16![Fjör í vetrarfríi og leikfangaskiptimarkaður](/library/Myndir-Bokasafn/Vidburdir/1.okt23.jpg?proc=150x150)
Það er nóg um að vera í bókasafninu þessa dagana á meðan á vetrarfríinu stendur.
Meira ... 23.10.2023 15:00![Þriðjudaginn 24. október er kvennaverkfall.](/library/Myndir-Bokasafn/Vidburdir/kvennaverkfall2023.jpg?proc=150x150)
Þriðjudaginn 24. október er kvennaverkfall. Bókasafn Mosfellsbæjar verður eingöngu opið fyrir sjálfsafgreiðslu þann dag.
Meira ... 06.10.2023 09:44![Októbergetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/ValaNyklippt.png?proc=150x150)
Draugar og hryllingur eiga hug og hjarta barnagetraunarinnar þennan mánuðinn enda hrekkjavakan á næsta leiti. Einn hugrakkur og heppinn þátttakandi verður að vanda verðlaunaður með bókagjöf. Ekki gleyma að starfsfólk safnsins er boðið og búið að aðstoða eftir þörfum.
Meira ... 18.09.2023 11:24Vegna landsfundar Upplýsingar verður skertur afgreiðslutími í Bókasafni Mosfellsbæjar
fimmtudaginn 21. september og föstudaginn 22. september.
Þessa daga verður opið frá 14:00-18:00.
Meira ... 04.09.2023 12:28![Septembergetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/PP_a_skui.png?proc=150x150)
Barnagetraun safnsins mætir úthvíld til leiks eftir gott sumarfrí og tekur nú við vaktinni af Sumarlestrinum sem leggst í dvala yfir veturinn. Að þessu sinni er spurt um sögupersónur sem bæði hafa komið fyrir í bókum og teiknimyndum.
Meira ... 16.08.2023 08:42![Sýningaropnun Fjallaloft 11.8.2023](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Listasalur/henrik12.jpg?proc=150x150)
Fjölmenn sýningaropnun í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 11. ágúst. Henrik Chadwick Hlynsson opnaði fyrstu einkasýningu sína Fjallaloft. Sýningin samanstendur af málverkum af náttúru Íslands. Mikilfengleiki jökla og fjalla eru aðalviðfangsefni hans og tengir hann upplifun sína á þeim í verkin sín. Hann starfaði sem fjallaleiðsögumaður í tíu ár. Á þeim tíma myndaði hann sérstök tengsl við náttúruna og notar hann þá upplifun í verkin sín.
Á ferðum sínum um jökla landsins safnar hann öskuvatni frá íshellum sem hann notar í verk sín og tengir þannig náttúruna inn í verkin. Verkin endurspegla hina stórbrotnu náttúru sem getur verið bæði hrikaleg og undurblíð í senn. Sýningin stendur til 8. september og er opin alla virka daga frá kl. 9-18 og 12-16 á laugardögum
Meira ... 15.08.2023 10:16![Töfrasýning á uppskeruhátíð Sumarlesturs 24. ágúst kl. 17](/library/Myndir-Bokasafn/Vidburdir/EinarAronVector.png?proc=150x150)
Við kveðjum Sumarlesturinn með stæl fimmtudaginn 24. ágúst kl. 17. Einar Aron töframaður kemur í heimsókn í safnið með töfrasýningu sem er stútfull af glensi og gaman.
Meira ... 03.08.2023 08:42![Lokað á frídegi verslunarmanna 7. ágúst!](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Listasalur/Verslunarmannahelgi_lokad%20(3).jpg?proc=150x150)
Lokað verður á frídegi verslunarmanna mánudaginn 7. ágúst!
Meira ... 12.07.2023 08:23Nú er mögulegt að fá bókasafnskortið í farsímann.
Lánþegar sækja kortið sjálfir með því að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða hafa samband við sitt bókasafn. Athugið að nota þarf “Smart Wallet” fyrir Android síma. Vinsamlegast notið QR kóðann á myndinni til að virkja kortið.
Meira ... 27.06.2023 12:42Verið velkomin á opnun sýningarinnar Components, föstudaginn 30. júní milli kl 16-18.
Meira ... 15.06.2023 08:48![Ritsmiðja með Evu Rún Þorgeirsdóttur fyrir 10-12 ára börn](/library/Myndagallery/ritsmi%c3%b0ja2023.jpg?proc=150x150)
Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur stýrði þessum flotta hópi í ritsmiðju á vegum bókasafnsins. Smiðjan tókst með eindæmum vel og aldrei að vita nema að þar hafi fæðst hugmyndir sem síðar komist á prent og hægt verði að fá að láni í Bókasafni Mosfellsbæjar í framtíðinni. Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir komuna og Evu Rún fyrir einstaklega skemmtilega smiðjustjórn.
Meira ... 12.06.2023 14:26![Sumarlestur 2023](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/Sumarlestur_Plakat.jpg?proc=150x150)
Ævintýrakortin eru komin í safnið! Við byrjum því Sumarlestur safnsins strax í dag. Við hvetjum alla unga lestrarhesta til að skunda í safnið og sækja sér kort. Í sumar söfnum við límmiðum fyrir lesnar bækur og að sjálfsögðu verða vikulegir vinningar í boði fyrir heppna þátttakendur sem skila inn bókaumsögn.
Meira ... 06.06.2023 11:17![Sýningaropnun / Krókaleiðir](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/Listasalur_krokaleidir.1.jpg?proc=150x150)
Sýningin Krókaleiðir opnaði laugadaginn 27. maí og var margt um manninn á opnunardegi. Listakonunnar Sigurrós Björnsdóttir og Halla Einarsdóttir sýna samblöndu af verkum sem eiga það sameiginlegt að snerta á frásagnarkrafti hluta, minnum innan þekktra frásagnaaðferða og því margslungna ferli að setja sig inn í hin ýmsu hlutverk. Sýningin stendur til og með 23. Júní.
Meira ... 30.05.2023 14:37Bókasafnið og Listasalur Mosfellsbæjar verða með laugardagslokun frá 3. júní til og með 12. ágúst.
Meira ... 03.05.2023 09:21![Maígetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/mammamo.png?proc=150x150)
Barnabókapabbarnir áttu aprílgetraunina en nú hafa barnabókamömmurnar komið sér kirfilega fyrir í síðustu getraun fyrir sumarfrí. Rétt eins og með barnabókapabbana eru mömmur mánaðarins heldur betur ólíkar; ein baulandi, önnur gómsæt á bragðið og sú þriðja aðeins tæp!
Meira ... 02.05.2023 10:21![Umsóknir um sýningar í Listasal 2024](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Listasalur/Listasalur1.jpg?proc=150x150)
Listasalur Mosfellsbæjar. Auglýst er eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2024.
Meira ... 14.04.2023 11:46![Blómleg vika í Bókasafni Mosfellsbæjar](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/blomlegvika_cutout.jpg?proc=150x150)
Næsta vika verður sannarlega blómleg í Bókasafni Mosfellsbæjar, enda er vorið rétt handan við hornið!
Meira ... 14.04.2023 10:06![Bókasafn Mosfellsbæjar er að safna í fræsafn](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/fraesafn.jpg?proc=150x150)
Áttu fræ sem þú ætlar ekki að nota? Bókasafn Mosfellsbæjar er að safna í fræsafn. 🌱 Tekið er á móti kryddjurta-, matjurta- og sumarblómafræjum í afgreiðslu safnsins. Athugið að merkja fræin með heiti á íslensku, ensku eða latínu. Þegar allt er til reiðu verður fræsafnið opnað með pompi og pragt, og allir geta prófað sig áfram ræktun.
Meira ... 04.04.2023 21:55Bókasafn Mosfellsbæjar er lokað á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. Laugardaginn 9. apríl er opið kl. 12-16.
Meira ... 04.04.2023 13:12![Barnagetraun aprílmánaðar](/library/Myndir-Bokasafn/Vidburdir/bertil.png?proc=150x150)
Nú hafa barnabókapabbar tekið yfir getraunina þennan mánuðinn! Við spyrjum því um ansi ólíkar sögupersónur frá þremur mismunandi löndum sem eiga það þó sameiginlegt að vera allar pabbar.
Meira ... 20.03.2023 12:24![Fjölmennt var við opnun sýningar Rósu Traustadóttur, Áhrifavaldur = shinrin yoku.](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/RT7.jpg?proc=150x150)
Rósa Traustadóttir opnaði sýningu sína, Áhrifavaldur = shinrin yoku, laugardaginn 18. mars. Fjölmennt var við opnun sýningarinnar og boðið var upp á léttar veitingar.
Meira ... 01.03.2023 13:08![Marsgetraunin](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/ormur_marsgetraun.png?proc=150x150)
Hefur þú rekist á orm á stærð við skemmtiferðaskip eða lausnarmiðaða kú sem talar?
Meira ... 08.02.2023 11:35![Sýningaropnun „Inventory of the Subconscious Mind“ í Listasal Mosfellsbæjar, föstudaginn 10. febrúar kl. 16-18](/library/Myndir-Bokasafn/Myndasafn/Frettir/2023/otilia_martin_mynd1.jpg?proc=150x150)
Á sýningunni má finna stafrænar klippimyndir eftir spænsku listakonuna Otilia Martin Gonzales. Þema sýningarinnar eru draumar en vegna áhuga á táknfræði hefur listiðkun hennar þróast í kringum drauma og myndrænt táknmál þeirra.
Í verkum hennar fléttast saman skrímsli, draumar, sálfræði og töfrar. Gestum sýningarinnar er boðið í ferðalag um undirmeðvitund listakonunnar þar sem sjá má margbreytilegt myndmál, tákn, liti og áferð.
Meira ...